Brjóstapúðar mikilvægar en 1000 manns sem detta út af framfærslu ?

langar að minna á að það eru um 1000 manns sem duttu út af rétti til atvinnuleysisbóta þessi áramót, þó stjórnarskráin tali um að fólk eigi að vera tryggð framfræsla ef það missir vinnu eða veikist. og verandi einn af þessum hópi þá sé ég ekki að það standi mér neitt til boða, svo ég set stórt spurningarmerki við það að brjóstapúðar eigi að vera forgangsmál velferðaráðherra, og langar að byðja af fullri virðingu um að þingmaður vakni upp og reyni að átta sig á raunveruleikanum á þessu hörmungar skeri.
mbl.is Gagnrýnir velferðarráðuneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er svakalegt ástand GunniS, ekki vissi ég að ástandið væri svona hrikalegt, vissi þó að margir væru illa staddir, hvers vegna í ósköpunum er ekki gert meira úr þessu í fréttum?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.1.2012 kl. 16:10

2 Smámynd: GunniS

ég veit ekki, en hef spurt mig að þessu sjálfur og ekki náð neinni niðurstöðu. en maður skilur ekki hvað er í gangi, það er eins og alþingi ætli sé að ræða allt annað en málefni atvinnulausra og það ástand sem er komið upp í þeim efnum.

GunniS, 23.1.2012 kl. 16:24

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já einmitt þau eru að reyna að telja landanum um að þau hafi unnið svo vel og allt sé svo gott, þá hentar þetta ekki alveg inn í myndina. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.1.2012 kl. 17:41

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Orð í tíma töluð.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 24.1.2012 kl. 08:06

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég veit vel að þeeta er svona á íslandi. Og ég ráðegg engum að bíða eftir neinu velferðarráði. Menn skilja ekki og ástand yfirvalda er eins og þeir sé ekki vaknaðir úr svæfingu. Letin sem er búin að breiða úr sér hjá Ríkisstarfsmönnum er óskapleg. Leti veldur áhugaleysi og doða sem er orðið aðalsmerki alls sem skeður á þessu landi.

Bíðið bara því þettar ekki ekki neitt á leiðinni að lagast. Heldur mun þróunin á Íslandi næstu mánuði verða martröð fyrir þúsundir...

Læknar og hjúkrunarfólk á ríkisspítulum á Íslandi eru með latasta fólki sem ég hef kynnst...þetta með brjóstapúðakonurnar eru bara eitt af endalausum dæmum úr þeirri stétt...

Óskar Arnórsson, 24.1.2012 kl. 08:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband