Færsluflokkur: Bloggar

fórnir

mér finnst tvennt athugavert í þessari grein, það að fórna sparífé , og að það sé í lagi að bankar fari á hausinn. þessu tvennu fórnað til að verða samkeppnishæfari ? er þetta ekki skammgóður vermir, eins og að pissa í skóinn.
mbl.is Írar fleygi evrunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

krónuna burt ?

Hvað varð um umræðuna um að taka upp annan gjaldmiðil, ? það er of langt að bíða eftir evruni, í millitíðinni getum við tekið upp dollar og allir verða hamingjusamir.
mbl.is „Eins og blaut tuska“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

jákvæðar fréttir ?

voðalega er gaman að svona fréttum eða þannig, og að blaðamen þurfi endilega að fara og grafa svona upp einhverstaðar utan úr heimi. er einhver tilgangur með svona fréttum annað en magna upp neikvæðni í fréttaflutningi ?
mbl.is Misþyrmdi fyrrverandi kærustu sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

skila láninu

við ættum að skila þessu IMF láni, það eru okurvextir á því hvort eð er.  og segja svo við Gordon að hann geti átt sig.
mbl.is Bretar að semja við IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

var íbúðarverð ekki orðið of hátt?

ég var að skoða litlar 2 - 3 herbergja íbúðir um daginn, og sló því inn hver meðal greiðslubyrði yrði af um 13 - 14 miljóna láni fyrir svona íbúð, og fékk út að maður væri að borga um 150 - 160 þús á mánuði , segir það sig ekki sjálft að þetta er full mikið fyrir íbúð sem venjulega einn maður er að kaupa og komin tími á að verð lækki.

eða það að efling myndi miða lægstu laun við að fólk geti borgað af íbúðarkaupa lánum, sé það samt ekki gerast, þeim er eins og sama um allt þannig. 


mbl.is 46% raunlækkun fasteigna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fögur loforð fyrir kostningar

Mér finnst ríkistjórnin vera að hugsa um eitthvað allt annað en atvinnuleysið, mun það auka störf í landinu ef við værum komin í ESB ?  mér svona sýnist þessi nýja ríkisstjórn ætla að þusa og tuða um hvort þetta stjórnarsamstarf kemur sér saman um ESB aðild. svo verði bara farið í sumarfrí og fólkinu í landinu leift að vera atvinnulaust meðan fína fólkið á þingi fer í sitt 3 mánaða sumarfrí, þó það sé löngu komin tími á að breyta þessum lögum um sumafrí , og eða frí þingmanna yfir höfuð.
mbl.is Margir leita til kirkjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostnaður

Bara minna á að það kostar 2 miljarða á mánuði ( 2000 miljónir ) að hafa þessa 17.800 án vinnu sem í dag eru atvinnulausir. merkilegt að hún minnist ekki á það - eða talar um almennar úrbætur í atvinnumálum.
mbl.is Sumarnám kostar milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

velkomin í hópinn

já velkomin í hópinn námsmenn, ég er atvinnulaus og er búin að vera það síðan um jól, eða desemeber 2008. svo þið námsmenn komið bara í hóp þeirra 17.875 sem eru án vinnu í dag, samkvæmt www.vinnumalastofnun.is

 persónulega finnst mér þetta vera væl í námsmönnum, sérstaklega þegar það eru þetta margir án vinnu í dag, og það er eins og námsmenn hafi ekki fattað það. hvað með okkur sem erum án vinnu í dag, verðum við ekki lika án vinnu í sumar ? 


mbl.is Námsmenn örvænta um sumarið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reka starfsmenn lífeyrirsjóðanna ?

Mér fyndist mjög eðlilegt að láta þá menn fara sem eru í vinnu við að gæta okkar sparnaðar í lífeyrirsjóðakerfinu, og þeim verði sagt upp störfum, þeir eru búnir að sýna að þeim hefur mistekist að gæta okkar sparnaðar, plús það þeir taka sér himinhá laun fyrir að klúðra málunum. burt með þessa menn, ekki vill ég sjá að þeir höndli með minn sparnað.

svo á að gjör breyta þessu fyrirkomulagi, til dæmis að það verði búin til bankareikningur fyrir hvern og einn, og hans sparnaður lagður reglulega inn á þá bók sem verður lokuð þangað til kemur að því að fólk fari á eftirlaun.


mbl.is Greiðslur úr 200 þúsund krónum í 180 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landráð ?

Maður veltir fyrir sér hvort það sé hægt að kæra menn fyrir landráð, sem gera sér það að leik að versla með gjaldeyri með þeim afleiðingum að krónan veikist.
mbl.is Herða á gjaldeyrishöftin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband